Eignir innlánsstofnana námu 5.771,3 ma.kr. í lok september og hækkuðu um 60,7 ma.kr í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.241,5 ma.kr. og hækkuðu um 28 ma.kr. Erlendar eignir námu 529,9 ma.kr. og hækkuðu um 32,7 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.001,4 ma.kr. og hækkuðu um 48,2 ma.kr. í september. Erlendar skuldir námu 949,7 ma.kr. og hækkuðu um 5,3 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 820,2 ma.kr. í lok september og hækkaði um 7,1 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 51,5 ma.kr. í lok september, þar af voru verðtryggð lán 32,1 ma.kr., óverðtryggð lán 3,2 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 15,3 ma.kr. og eignarleiga 851 m.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 15,4 ma.kr. í september, þar af námu lán með veði í íbúð 13,1 ma.kr. sem var 2 ma.kr. hækkun frá ágúst.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi bankakerfis í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is