Fara beint í Meginmál

Ísland tengist TIPS-kerfi Evrukerfisins fyrir rauntímagreiðslur 24. júní 2026

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, við undirritunina.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, við undirritunina.

Seðlabanki Íslands hefur undirritað samning við Seðlabanka Evrópu um þátttöku Íslands í TIPS, rauntímagreiðslukerfi Evrukerfisins (TARGET Instant Payment Settlement). Samningurinn felur í sér að frá árinu 2028 verður unnt að gera upp rauntímagreiðslur í íslenskum krónum í TIPS.

Með þátttöku Íslands verður íslenska krónan fimmti gjaldmiðillinn sem unnt verður að nota til uppgjörs rauntímagreiðslna í TIPS. Auk evrunnar eru sænska og danska krónan þegar í kerfinu og stefnt er að því að norsk króna bætist við árið 2028.

TIPS er hluti af TARGET-þjónustum Evrukerfisins og er uppgjörskerfi fyrir millibankagreiðslur í rauntíma, sem verða sífellt mikilvægari hluti af daglegri greiðslumiðlun heimila og fyrirtækja. Kerfið byggist á uppgjöri milli viðskiptabanka og sparisjóða í seðlabankafé og er hannað með áherslu á öryggi, skilvirkni og samræmda framkvæmd greiðslumiðlunar milli landa.

Þátttaka Íslands í TIPS er til þess fallin að auka rekstraröryggi í greiðslumiðlun hér á landi með því að nýta skilvirka greiðsluinnviði sem mæta auknum kröfum um öryggi, hraða, áreiðanleika og aðgengi að greiðsluþjónustu. Fyrir almenning felur þetta fyrst og fremst í sér að millibankagreiðslumiðlun hér á landi, til dæmis milli einstaklinga og til fyrirtækja, mun hvíla á traustari og samræmdari innviðum sem stuðla að því að greiðslur berist hratt og örugglega allan sólarhringinn.

Samhliða innleiðingu TIPS verður komið á varaleið sem unnt verður að virkja ef TIPS verður tímabundið óaðgengilegt. Með því er stuðlað að aukinni samfellu í nauðsynlegri fjármálaþjónustu og dregið úr rekstraráhættu í innlendri greiðslumiðlun.

Þátttaka í TIPS styður við áframhaldandi þróun og hagkvæmni í greiðslumiðlun hér á landi og mun leysa af hólmi núverandi þjónustu fyrir uppgjör rauntímagreiðslna. Með því verða íslensk greiðsluferli í samræmi við alþjóðlega staðla, á sama tíma og íslenskur fjármálamarkaður nýtur góðs af sameiginlegri tækni, rekstraröryggi og stærðarhagkvæmni Evrukerfisins.

Samhliða undirritun samningsins birti Seðlabanki Evrópu fréttatilkynningu um þátttöku Íslands í TIPS: Iceland joins TIPS for instant payments.

Ásgeir, Lagarde og starfsmenn Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu.
Ásgeir, Lagarde og starfsmenn Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu.