Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 2. til 4. nóvember sl. Leitað var til 37 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör bárust frá 31 aðila og var svarhlutfallið því 84%.
Helstu niðurstöður
Samkvæmt miðgildi svara vænta markaðsaðilar meiri verðbólgu á næstu ársfjórðungum en þeir gerðu í síðustu könnun í ágúst. Þeir gera þó ráð fyrir að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári og vænta 3,7% verðbólgu eftir eitt ár, eða 0,2 prósentum minna en í síðustu könnun. Markaðsaðilar vænta þess einnig að verðbólga verði 3% eftir tvö ár sem er 0,5 prósentum minna en í ágústkönnuninni. Verðbólguvæntingar þeirra til fimm ára lækkuðu einnig lítillega. Væntingar þeirra um meðalverðbólgu næstu tíu ára voru hins vegar óbreyttar í 3% milli kannana. Þá búast markaðsaðilar við því að gengi krónunnar gagnvart evru verði lítillega lægra eftir eitt ár en það var þegar könnunin var framkvæmd.
Væntingar um þróun meginvaxta Seðlabankans fram á mitt næsta ár eru óbreyttar frá síðustu könnun en markaðsaðilar búast nú við hraðari lækkun vaxta frá þriðja fjórðungi næsta árs. Samkvæmt miðgildi svara gera þeir ráð fyrir að meginvextir verði óbreyttir í 8% á yfirstandandi ársfjórðungi og taki að lækka á fyrsta fjórðungi næsta árs. Þá gera þeir ráð fyrir að meginvextir verði 6% eftir tvö ár samanborið við 6,25% í síðustu könnun.
Hlutfall svaranda sem töldu taumhald peningastefnunnar of laust lækkaði talsvert milli kannana eða úr 33% í ágúst í 3% nú. Á móti hækkaði hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt úr 50% í 65% og hlutfall þeirra sem töldu það hæfilegt úr 17% í 32%.
Heildardreifing svara markaðsaðila um væntingar til verðbólgu jókst til allra tímalengda milli kannana. Heildardreifing svara um væntingar um þróun meginvaxta á næstu fjórðungum minnkaði milli kananna en hún jókst aftur á móti um væntingar eftir eitt og tvö ár.
Markaðsaðilar voru einnig spurðir að því hverja þeir töldu vera meginástæðu fyrir hækkun kröfu verðtryggðra ríkisbréfa til skamms og meðallangs tíma frá því í byrjun mars. Flestir svarendur töldu það vera vegna væntinga um meira aðhald peningastefnunnar en áður var talið. Nokkrir vísuðu einnig til hærri raunvaxta erlendis.