Fara beint í Meginmál

Lánasjóðir ríkisins í janúar 2026 27. febrúar 2026

Heildareignir lánasjóða ríkisins námu 504,6 ma.kr. í lok janúar og lækkuðu um 111,1 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 504,3 ma.kr. og erlendar eignir 224 m.kr.
Skuldir (án eigin fjár) námu 284,7 ma.kr. og lækkuðu um 356,9 ma.kr. í mánuðinum. 
Eigið fé lánasjóða ríkisins hækkaði um 245,8 ma.kr. og nam 219,9 ma.kr. í lok janúar.

Breytingarnar má einkum rekja til slita á ÍL-sjóði en um áramótin var sjóðnum slitið og þær eignir og skuldir sem eftir voru sjóðnum fluttar yfir til ríkissjóðs.

Til að þau útlán sem voru í eignasafni ÍL-sjóðs detti ekki út úr mánaðarlegum hagtölum Seðlabankans er útlánasafninu haldið inni í hagtölum um lánasjóði ríkisins (ásamt skuldafærslu á móti). Aðrar eignir fyrrum ÍL-sjóðs detta út úr gögnunum.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lánasjóða ríkisins í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is