Fara beint í Meginmál

Lánasjóðir ríkisins í júní 2024

Heildareignir lánasjóða ríkisins námu 924,8 ma.kr. í lok júní og lækkuðu um 6,2 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 924,7 ma.kr. og erlendar eignir 151 m.kr.
Skuldir námu 1.085,6 ma.kr. og lækkuðu um 7,4 ma.kr. í mánuðinum. Þar af námu innlendar skuldir 1.085,4 ma.kr. og erlendar skuldir 245 m.kr.
Eigið fé lánasjóða ríkisins hækkaði um 1,2 ma.kr. í mánuðinum og var neikvætt um 160,8 ma.kr. í lok júní.

Gögnin hafa verið endurskoðuð frá desember 2023 og má rekja meginhluta breytinga sem þá koma fram til breyttrar matsaðferðar útlána og innleiðingar á IPSAS reikningsskilastaðlinum.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lánasjóða ríkisins í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is