Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í desember 2025 4. febrúar 2026

Eignir lífeyrissjóða námu 8.878,1 ma.kr. í desember og hækkuðu um 21,6 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.855,1 ma.kr. og séreignadeilda 1.023,1 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.196,9 ma.kr. og hækkuðu um 50,5 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.786,0 ma.kr. og lækkuðu um 4,9 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.125,0 ma.kr. og hækkuðu um 48,9 ma.kr. Innlend útlán námu 803,2 ma.kr. og hækkuðu um 2,9 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.681,2 ma.kr. í lok desember og lækkuðu um 28,9 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.594,2 ma.kr. og lækkuðu um 24,1 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 568 m.kr. og námu 10,1 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.862,7 ma.kr. í lok desember.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is