Eignir lífeyrissjóða námu 8.956,3 ma.kr. í febrúar og hækkuðu um 24,3 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.914,2 ma.kr. og séreignadeilda 1.042,0 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.288,0 ma.kr. og hækkuðu um 19,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.850,2 ma.kr. og hækkuðu um 16,0 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.116,4 ma.kr. og lækkuðu um 14,3 ma.kr. Innlend útlán námu 818,6 ma.kr. og hækkuðu um 5,4 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.668,2 ma.kr. í lok febrúar og hækkuðu um 4,6 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.564,1 ma.kr. og lækkuðu um 12,7 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 3,0 ma.kr. og námu 8,0 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.940,5 ma.kr. í lok febrúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is