Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í janúar 2024 5. mars 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.399,6 ma.kr. í lok janúar og hækkuðu um 112,7 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.591,9 ma.kr. og séreignadeilda 807,7 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.615,3 ma.kr. og hækkuðu um 67,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.491,1 ma.kr. og hækkuðu um 27,6 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.094,2 ma.kr. og hækkuðu um 43,5 ma.kr. Innlend útlán námu 646,3 ma.kr. og hækkuðu um 4,7 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 2.784,3 ma.kr. í lok janúar og hækkuðu um 45,4 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.701,0 ma.kr. og hækkuðu um 44,5 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 1,2 ma.kr. og námu 11,1 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.389,1 ma.kr. í lok janúar.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is