Eignir lífeyrissjóða námu 8.932,0 ma.kr. í janúar og hækkuðu um 53,2 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.901,8 ma.kr. og séreignadeilda 1.030,2 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.269,4 ma.kr. og hækkuðu um 72,1 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.834,3 ma.kr. og hækkuðu um 48,2 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.402,9 ma.kr. og hækkuðu um 20,4 ma.kr. Innlend útlán námu 813,2 ma.kr. og hækkuðu um 11,7 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.662,6 ma.kr. í lok janúar og lækkuðu um 18,9 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.627,5 ma.kr. og lækkuðu um 19,6 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 808 m.kr. og námu 10,9 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.920,0 ma.kr. í lok janúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is