Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í júní 2024 7. ágúst 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.722,1 ma.kr. í júní og hækkuðu um 123,7 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.868,2 ma.kr. og séreignadeilda 853,9 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.660,5 ma.kr. og hækkuðu um 35,3 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.561 ma.kr. og hækkuðu um 4,6 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.013,4 ma.kr. og hækkuðu um 3,8 ma.kr. Innlend útlán námu 662,9 ma.kr. og hækkuðu um 2,3 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.061,6 ma.kr. í lok júní og hækkuðu um 88,4 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.980,9 ma.kr. og hækkuðu um 89,8 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 607 m.kr. og námu 6,7 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.704,6 ma.kr. í lok júní.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is