Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í mars 2024 7. maí 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.566 ma.kr. í lok mars og hækkuðu um 90,4 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.735,3 ma.kr. og séreignadeilda 830,7 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.583,5 ma.kr. og hækkuðu um 16,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.505,9 ma.kr. og hækkuðu um 19,1 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.019,3 ma.kr. og lækkuðu um 24,2 ma.kr. Innlend útlán námu 655,9 ma.kr. og hækkuðu um 7,4 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 2.982,5 ma.kr. í lok mars og hækkuðu um 74,1 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.898,7 ma.kr. og hækkuðu um 77,4 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 1,7 ma.kr. og námu 9,7 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.554,9 ma.kr. í lok mars.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is