Eignir lífeyrissjóða námu 8.799,4 ma.kr. í mars og lækkuðu um 156,8 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.770,9 ma.kr. og séreignadeilda 1.028,6 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.258,3 ma.kr. og lækkuðu um 29,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.874,8 ma.kr. og hækkuðu um 24,6 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.054,8 ma.kr. og lækkuðu um 61,6 ma.kr. Innlend útlán námu 828,6 ma.kr. og hækkuðu um 10,0 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.541,2 ma.kr. í lok mars og lækkuðu um 127,1 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.424,9 ma.kr. og lækkuðu um 139,2 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 344 m.kr. og námu 8,3 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.784,5 ma.kr. í lok mars.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is