Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í nóvember 2025 9. janúar 2026

Eignir lífeyrissjóða námu 8.855,4 ma.kr. í nóvember og hækkuðu um 165,6 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.840,0 ma.kr. og séreignadeilda 1.015,3 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.146,3 ma.kr. og hækkuðu um 68,8 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.791,1 ma.kr. og hækkuðu um 28,4 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.076,0 ma.kr. og hækkuðu um 19,9 ma.kr. Innlend útlán námu 800,3 ma.kr. og hækkuðu um 9,6 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.709,0 ma.kr. í lok nóvember og hækkuðu um 96,8 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.618,0 ma.kr. og hækkuðu um 92,9 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 368 m.kr. og námu 10,7 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.855,4 ma.kr. í lok nóvember.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is