Eignir lífeyrissjóða námu 8.689,8 ma.kr. í október og hækkuðu um 208,5 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.692,1 ma.kr. og séreignadeilda 997,7 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.077,6 ma.kr. og hækkuðu um 40,9 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.763,2 ma.kr. og hækkuðu um 34,1 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.057,8 ma.kr. og hækkuðu um 7,3 ma.kr. Innlend útlán námu 790,7 ma.kr. og hækkuðu um 8,5 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.612,2 ma.kr. í lok október og hækkuðu um 167,6 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.525,1 ma.kr. og hækkuðu um 177,5 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 1,2 ma.kr. og námu 10,3 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.677,2 ma.kr. í lok október.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is