Hinn 25. júní 2026 veitti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Myntkaupum ehf. starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna samkvæmt lögum nr. 101/2025, um markaði fyrir sýndareignir. Í leyfinu felst heimild félagsins til vörslu og umsýslu sýndareigna fyrir hönd viðskiptavina, skipta á sýndareignum fyrir fjármuni, skipta á sýndareignum fyrir aðrar sýndareignir og millifærsluþjónustu fyrir sýndareignir fyrir hönd viðskiptavina, samkvæmt a-, c-, d- og j-lið 16. tölul. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1114, um markaði með sýndareignir (MiCA), sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 101/2025. Myntkaup ehf. hafði áður verið skráður þjónustuveitandi sýndareigna á grundvelli laga nr. 140/2018, um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
- Fjármálaeftirlitsnefnd
- Um fjármálaeftirlit
- Eftirlitsskyld starfsemi
- Fjármálafyrirtæki
- Lífeyrismarkaður
- Vátryggingastarfsemi
- Verðbréfamarkaður og sjóðir
- Greiðsluþjónusta og rafeyrir
- Markaðir með sýndareignir og MiCA
- Eftirlit með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
- Verðbréfunarreglugerðin
- Stafrænn viðnámsþróttur á fjármálamarkaði (DORA)
- Lykilupplýsingaskjöl
- Aðrir markaðir