Fara beint í Meginmál

Niðurstaða athugana á aðgerðum þriggja lífeyrissjóða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka vegna umframgreiðslna og uppgreiðslna húsnæðislána 4. nóvember 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf í desember 2025 athuganir á því hvort verklag og eftirlit þriggja lífeyrissjóða með umframgreiðslum og uppgreiðslum húsnæðislána væri fullnægjandi og í samræmi við kröfur laga og reglugerða um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Athuganirnar tóku til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Niðurstöður athugananna lágu fyrir í ágúst 2026.