Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Niðurstaða liggur nú fyrir er varðar mat á viðbótareiginfjárþörf hjá indó sparisjóð hf. Ákvörðun um viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn hjá indó sparisjóð hf. nemur 5,8% af áhættugrunni.
Nánari upplýsingar má finna í eftirfarandi gagnsæistilkynningu, þ.m.t. upplýsingar um heildarkröfu um eiginfjárgrunn en hún samanstendur af lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn, áðurnefndri viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn og samanlagðri kröfu um eiginfjárauka, og athugasemdir fjármálaeftirlitsins. Að öðru leyti má nálgast upplýsingar um eiginfjárkröfur fyrir fjármálafyrirtæki hér fyrir neðan.