Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni.
Niðurstaða liggur nú fyrir er varðar mat á viðbótareiginfjárþörf hjá tveimur sparisjóðum. Ákvörðun um viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn hjá Sparisjóði Austurlands hf. nemur 5,3% af áhættugrunni og lækkar krafan því um 0,2 prósentur frá fyrri kröfu. Viðbótarkrafan nemur 3,9% af áhættugrunni hjá Sparisjóði Þingeyinga ses. og lækkar hún því um 0,5 prósentur frá fyrri kröfu.
Nánari upplýsingar má finna í eftirfarandi gagnsæistilkynningum, þ.m.t. upplýsingar um heildarkröfu um eiginfjárgrunn en hún samanstendur af lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn, áðurnefndri viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn og samanlagðri kröfu um eiginfjárauka, og athugasemdir fjármálaeftirlitsins. Að öðru leyti má nálgast upplýsingar um eiginfjárkröfur fyrir fjármálafyrirtæki hér fyrir neðan.