Fara beint í Meginmál

Niðurstöður könnunar- og matsferlis hjá viðskiptabönkunum – ákvarðanir um viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn 10. júlí 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Niðurstöður liggja nú fyrir varðandi mat á viðbótareiginfjárþörf hjá viðskiptabönkunum fjórum. Ákvörðun um viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn hjá Arion banka hf. nemur 2% af áhættugrunni og hækkar krafan því um 0,1 prósentu á milli ára. Viðbótarkrafan nemur 1,8% af áhættugrunni hjá Íslandsbanka hf. og hækkar hún því um 0,4 prósentur á milli ára. Krafan hjá Kviku banka hf. lækkar um 0,2 prósentur á milli ára og nemur 3,3% af áhættugrunni og hjá Landsbankanum hf. lækkar krafan um 0,4 prósentur og nemur 2,1% af áhættugrunni.

Nánari upplýsingar má finna í eftirfarandi gagnsæistilkynningum, þ.m.t. upplýsingar um heildarkröfu um eiginfjárgrunn en hún samanstendur af lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn, viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn og samanlagðri kröfu um eiginfjárauka. Upplýsingar um eiginfjárkröfur fyrir fjármálafyrirtæki að öðru leyti má nálgast hér fyrir neðan.