Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „Nowcasting Icelandic GDP growth: can mixed-frequency bayesian VARs improve real-time nowcasts?“ eftir Melkorku Ýr Bustos meistaranema við Barcelona School of Economics og Bjarna G. Einarsson, hagfræðing hjá Seðlabankanum.
Rannsóknin kannar hvort bayesísk VAR-líkön af blandaðri tíðni bæti rauntíma spár um hagvöxt á Íslandi samanborið við hefðbundið bayesískt VAR-líkan á ársfjórðungslegri tíðni. Skoðaðar eru tvær nálganir á hvernig tekið er tillit til hagvísa sem birtast á hærri tíðni en ársfjórðungslegri: Blocking and stacking BVAR og Cube Root BVAR. Frammistaða þeirra er borin saman við ársfjórðungslegt BVAR og einfalt sjálffylgnilíkan yfir tímabilið 2010 til 2025 og á hverjum tímapunkti sem spá er framkvæmd er aðeins tekið tillit til þeirra gagna sem voru til reiðu á þeim tíma. Í lok hverrar viku tímabilsins eru líkönin notuð til að spá fyrir þáverandi ársfjórðung sem gefur 808 spár fyrir hvert líkan. Niðurstöðurnar sýna að Cube Root BVAR-líkanið stendur sig best af öllum líkönum og lækkar spáskekkjur um allt að 7 prósent samanborið við ársfjórðungslega BVAR-líkanið. Niðurstöðurnar benda til þess að það að taka tillit til upplýsinga sem birtast á hærri tíðni getur veitt hagstjórnaraðilum nytsamlegt rauntímamat á hagvexti.
Ritið er aðgengilegt hér fyrir neðan: