Fara beint í Meginmál

Ný rannsóknarritgerð um áhrif launa á verðbólgu 27. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „It's complicated: The impact of wages on inflation“ eftir Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóra peningastefnu hjá Seðlabankanum.

Hversu mikil áhrif hafa hækkanir launakostnaðar á verðbólgu og eru þessi áhrif breytileg? Í greininni eru íslensk gögn frá síðustu 35 árum notuð til að meta bein áhrif launakostnaðar á verðbólgu með mismunandi aðferðum. Niðurstöðurnar sýna að hækkanir launakostnaðar hafa tölfræðilega marktæk áhrif á verðbólgu yfir allt rannsóknartímabilið en að bæði stærð og varanleiki áhrifanna hafa breyst verulega yfir tíma. Áhrifin voru t.d. tiltölulega lítil á árunum fyrir heimsfaraldurinn en hafa aukist töluvert undanfarin ár. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að áhrifin ráðist af efnahagsaðstæðum hverju sinni. Þau eru meiri þegar verðbólga er mikil, þegar athygli almennings á verðbólgu er mikil, þegar laun hækka mikið og þegar uppsveifla er í þjóðarbúinu. Þessi auknu áhrif launakostnaðar á verðbólgu síðustu ár fara saman við hækkun verðbólguvæntinga frá lokum farsóttarinnar og vísbendingar eru um að væntingar hafi einnig orðið næmari fyrir þróun launakostnaðar. Niðurstöðurnar benda því til þess að verðbólguáhrif hækkunar launakostnaðar ráðist að verulegu leyti af því hversu mikil verðbólga er og hversu næmar verðbólguvæntingar eru fyrir efnahagslegum áföllum.

Sjá ritið hér: