Fara beint í Meginmál

Önnur fjármálafyrirtæki í desember 2025 27. janúar 2026

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok desember námu 292 ma.kr. og hækkuðu um 2,8 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 266,4 ma.kr. og erlendar eignir 25,7 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 8,2 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 5,4 ma.kr.

Skuldir (án eigi fjár) annarra fjármálafyrirtækja námu 248,8 ma.kr. og hækkuðu um 2,5 ma.kr. í desember. Þar af námu innlendar skuldir 237,5 ma.kr. og erlendar skuldir 11,2 ma.kr. Eigið fé nam 43,3 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 303,2 m.kr frá fyrri mánuði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is