Fara beint í Meginmál

Önnur fjármálafyrirtæki í júní 2024

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok júní námu 265,2 ma.kr. og hækkuðu um 7,8 ma.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 235,5 ma.kr. og erlendar eignir 29,7 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 3,1 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir hækkuðu um 4,8 ma.kr.

Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 230,7 ma.kr. og hækkuðu um 7,2 ma.kr. í júní. Þar af námu innlendar skuldir 211,7 ma.kr. og erlendar skuldir 19 ma.kr. Eigið fé nam 34,5 ma.kr. í lok júní og hækkaði um 597 m.kr frá fyrra mánuði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is