Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok mars námu 295,8 ma.kr. og lækkuðu um 1,9 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 274,5 ma.kr. og erlendar eignir 21,4 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 2,8 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 4,6 ma.kr.
Skuldir (án eigi fjár) annarra fjármálafyrirtækja námu 251,2 ma.kr. og lækkuðu um 2,2 ma.kr. í mars. Þar af námu innlendar skuldir 240,7 ma.kr. og erlendar skuldir 10,4 ma.kr. Eigið fé nam 44,7 ma.kr. í lok mars og hækkaði um 303 m.kr frá fyrri mánuði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is