Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok nóvember námu 289,2 ma.kr. og hækkuðu um 7,8 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 258,2 ma.kr. og erlendar eignir 31,0 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 121,6 m.kr. á milli mánaða og erlendar eignir hækkuðu um 7,7 ma.kr.
Skuldir (án eigi fjár) annarra fjármálafyrirtækja námu 246,2 ma.kr. og hækkuðu um 7,4 ma.kr. í nóvember. Þar af námu innlendar skuldir 232,1 ma.kr. og erlendar skuldir 14,1 ma.kr. Eigið fé nam 43,0 ma.kr. í lok nóvember og hækkaði um 408,3 m.kr frá fyrri mánuði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is