Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok október námu 265,6 ma.kr. og lækkuðu um 1,8 ma.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 242,3 ma.kr. og erlendar eignir 23,3 ma.kr. Innlendar eignir lækkuðu um 2,9 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir hækkuðu um 1,1 ma.kr.
Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 229,7 ma.kr. og lækkuðu um 2,5 ma.kr. í október. Þar af námu innlendar skuldir 217,3 ma.kr. og erlendar skuldir 12,4 ma.kr. Eigið fé nam 35,9 ma.kr. í lok október og hækkaði um 738 m.kr frá fyrri mánuði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is