Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok september námu 267,2 ma.kr. og lækkuðu um 793 m.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 244,8 ma.kr. og erlendar eignir 22,5 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 3,2 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 4 ma.kr.
Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 232,1 ma.kr. og lækkuðu um 994 m.kr. í september. Þar af námu innlendar skuldir 220,2 ma.kr. og erlendar skuldir 11,9 ma.kr. Eigið fé nam 35,1 ma.kr. í lok september og hækkaði um 201 m.kr frá fyrri mánuði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is