Fara beint í Meginmál

Raungengi í ágúst 2024 6. september 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 92,4 stig í ágúst sl. og lækkaði um 1,5% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 1,7% lægri í ágúst sl. samanborið við ágúst árið 2023.

Á öðrum ársfjórðungi ársins 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,1 stig (2005=100) sem er 1% hækkun miðað við fyrsta ársfjórðung 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 100,0 stig (2005=100) á öðrum ársfjórðungi 2024, hækkaði um 4,1% miðað við fyrsta ársfjórðung 2024.

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is