Fara beint í Meginmál

Raungengi í apríl 2026 8. maí 2026

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 128,5 stig í apríl sl., hækkaði um 0,5% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 3,5% hærri í apríl sl. samanborið við sama mánuð árið 2025.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 129,1 stig (2015=100) sem er 1,5% hækkun miðað við fjórða ársfjórðung árið 2025.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 139,6 stig (2015=100) á fjórða ársfjórðungi 2025, lækkaði um 4,8% miðað við þriðja ársfjórðung 2025.

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is