Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 128,6 stig í febrúar sl., hækkaði um 1,7% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 7,4% hærri í febrúar sl. samanborið við sama mánuð árið 2025.
Á fjórða ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 126,8 stig (2005=100) sem er 1,9% lækkun miðað við þriðja ársfjórðung árið 2025.
Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 146,6 stig (2015=100) á þriðja ársfjórðungi 2025, lækkaði um 1,7% miðað við öðrum ársfjórðung 2025.
Sjá nánari sundurliðun á raungengi í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is