Fara beint í Meginmál

Raungengi í janúar 2026 6. febrúar 2026

Grunnári vísitölu raungengis hefur verið breytt og er frá og með þessari birtingu 2015 (ársmeðaltal 2015 = 100) í stað 2005.

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 126,4 stig í janúar sl., hækkaði um 1,3% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 5,2% hærri í janúar sl. samanborið við sama mánuð árið 2025.

Á fjórða ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 126,8 stig (2015=100) sem er 1,9% lækkun miðað við þriðja ársfjórðung árið 2025.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 149,1 stig (2015=100) á þriðja ársfjórðungi 2025, lækkaði um 0,3% miðað við öðrum ársfjórðung 2025.

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is