Fara beint í Meginmál

Raungengi í júlí 2024 8. ágúst 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 93,8 stig í júlí sl. og hækkaði um 0,8% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 1,8% hærri í júlí sl. samanborið við júlí árið 2023.

Á öðrum ársfjórðungi ársins 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,0 stig (2005=100) sem er 0,9% hækkun miðað við fyrsta ársfjórðung 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 98,0 stig (2005=100) á fyrsta ársfjórðungi 2024, hækkaði um 3,8% miðað við fjórða ársfjórðung 2023 - (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á öðrum ársfjórðungi 2024 verður birt í byrjun september n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is