Fara beint í Meginmál

Raungengi í nóvember 2024 6. desember 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 94,6 stig í nóvember sl., hækkaði um 0,6% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 4,6% hærri í nóvember sl. samanborið við sama mánuð árið 2023.

Á þriðja ársfjórðungi ársins 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,0 stig (2005=100) sem er 0,1% lækkun miðað við annan ársfjórðung 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 96,0 stig (2005=100) á þriðja ársfjórðungi 2024, lækkaði um 1,2% miðað við annan ársfjórðung 2024.

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is