Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 98,1 stig í nóvember sl., lækkaði um 3,9% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 3,3% hærri í nóvember sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.
Á þriðja ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 102,2 stig (2005=100) sem er 2,7% hækkun miðað við öðrum ársfjórðung árið 2025.
Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 113,7 stig (2005=100) á þriðja ársfjórðungi 2025, lækkaði um 0,2% miðað við öðrum ársfjórðung 2025.
Sjá nánari sundurliðun á raungengi í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is