Fara beint í Meginmál

Raungengi í október 2024 7. nóvember 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 94,0 stig í október sl., hækkaði um 2,0% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 1,7% hærri í október sl. samanborið við sama mánuð árið 2023.

Á þriðja ársfjórðungi ársins 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,0 stig (2005=100) sem er 0,1% lækkun miðað við annan ársfjórðung 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 97,7 stig (2005=100) á öðrum ársfjórðungi 2024, hækkaði um 3,8% miðað við fyrsta ársfjórðung 2024 - (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á þriðja ársfjórðungi 2024 verður birt í byrjun desember n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is