Fara beint í Meginmál

Raungengi í október 2026 6. nóvember 2026

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 134,3 stig í október sl., hækkaði um 0,8% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 4,3% hærri í október sl. samanborið við sama mánuð árið 2025.

Á þriðja ársfjórðungi ársins 2026 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 131,6 stig (2005=100), sem er 1,3% hækkun miðað við annan ársfjórðung árið 2026.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 154,5 stig (2015=100) á öðrum ársfjórðungi 2026, hækkaði um 9,0% miðað við fyrsta ársfjórðung 2026.

 

Vegna endurskoðunar á gögnum um launakostnað á framleidda einingu var raungengi miðað við hlutfallslegan launakostnað endurskoðað frá fyrsta ársfjórðungi 1991

 

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is