Fara beint í Meginmál

Sátt fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands hf. og Kaðals ehf. 5. febrúar 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur haft til meðferðar mál sem varðar brot Kaðals ehf. gegn 1. mgr. 12. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga með því að hafa ekki tilkynnt fyrir fram og með fullnægjandi hætti um að félagið hygðist eignast virkan eignarhlut í ALM verðbréfum hf.

Með bréfi, dags. 7. nóvember 2025, lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar hinn 4. desember 2025 var málið talið að fullu upplýst og forsendur til að ljúka því með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 750.000 kr. til ríkissjóðs.

Brot félagsins varða ákvæði sem meðal annars er ætlað að stuðla að því að aðilar sem öðlast verulegan eignarhlut í verðbréfafyrirtækjum séu hæfir til að fara með hann. Þannig er dregið úr hættunni á að stórir hluthafar geti haft skaðleg áhrif á heilbrigðan og traustan rekstur fyrirtækis eða markaðarins í heild. Mikilvægt er að tilkynningarskyldu sé sinnt þannig að fjármálaeftirlitið hafi tækifæri til að meta hæfi fyrirhugaðra kaupenda áður en af viðskiptum verður.

Við meðferð málsins barst tilkynning frá félaginu og hinn 20. ágúst 2024 var það metið hæft til að fara með virkan eignarhlut í ALM verðbréfum hf.

Í sáttinni, sem birt er í heild sinni, er málsatvikum og niðurstöðum fjármálaeftirlitsins lýst í samræmi við 133. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og 9. gr. a laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við 1. mgr. 12. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.