Fara beint í Meginmál

Sátt fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Arion banka hf. 27. október 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur gert sátt við Arion banka hf. vegna brota á 2. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sem hefur lagagildi hér á landi með lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og brota á nánar tilgreindum ákvæðum laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.

Málið varðaði annars vegar skyldur Arion banka hf. til að greina og tilkynna fjármálaeftirlitinu um grunsamleg fyrirmæli og viðskipti, þ.e. þegar réttmætur grunur er um að þau geti falið í sér markaðsmisnotkun eða tilraun til hennar, og að viðhalda skilvirku fyrirkomulagi, kerfum og verklagi í því skyni. Hins vegar laut málið að framkvæmd Arion banka hf. á vörustjórnun, mati á tilhlýðileika fjármálagerninga fyrir viðskiptavini og þekkingu og hæfni starfsmanna við veitingu fjárfestingarþjónustu.

Fjármálaeftirlitið hafði til skoðunar grunsamleg fyrirmæli og viðskipti tveggja viðskiptamanna Arion banka hf. Annar þeirra lýsti því yfir í fjórtán skipti við mismunandi starfsmenn bankans að tilgangur viðskipta hans væri að hækka verð hlutabréfa eða halda því uppi til að koma í veg fyrir veðkall. Hinn viðskiptamaðurinn greindi starfsmanni bankans frá því í símtali að hann hefði keypt hlutabréf í þeim tilgangi að halda verði þeirra uppi. Að mati fjármálaeftirlitsins báru þessi samskipti með sér skýrar vísbendingar um mögulega markaðsmisnotkun og hefðu þegar í stað átt að vekja réttmætan grun hjá Arion banka hf. um að viðskiptin gætu falið í sér markaðsmisnotkun.

Starfsmenn gerðu regluvörslu Arion banka hf. ekki viðvart um framangreind viðskipti. Þá voru viðskipti fyrrnefnda viðskiptamannsins ekki tilkynnt fjármálaeftirlitinu, en tilkynning vegna viðskipta síðarnefnda viðskiptamannsins barst fjármálaeftirlitinu ekki fyrr en rúmum sjö mánuðum eftir að upplýsingar um tilgang þeirra komu fram í framangreindum samskiptum við starfsmann bankans.

Að mati fjármálaeftirlitsins voru vísbendingarnar þess eðlis að réttmætur grunur hefði átt að vakna þegar í stað og leiða til tafarlausra viðbragða. Þá var það niðurstaða fjármálaeftirlitsins að bankinn hefði ekki komið á og viðhaldið nægilega skilvirku fyrirkomulagi, kerfum og verklagi til að greina og tilkynna um grunsamleg fyrirmæli og viðskipti.

Fjármálaeftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að Arion banki hf. hefði ekki gert fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja að afleiðum með verðbréf væri dreift til viðeigandi markhóps og í þágu hagsmuna viðskiptavina, þegar ljóst var að dreifing átti sér ítrekað stað utan markhóps sem bankinn hafði skilgreint fyrir vöruna. Að mati fjármálaeftirlitsins tryggði fyrirkomulag bankans ekki að umfang og tíðni slíkrar dreifingar væru metin samkvæmt fyrirfram ákveðnum viðmiðum. Þá hafi við árlegt endurmat ekki verið tekin afstaða til þess hvort dreifingin gæfi tilefni til breytinga á áframhaldandi dreifingu, dreifingaráætlunum eða öðrum ráðstöfunum bankans.

Þá voru annmarkar á mati Arion banka hf. á tilhlýðileika afleiða með verðbréf fyrir viðskiptavini, en slíku mati er ætlað að leiða í ljós hvort viðskiptavinur hafi nægilega þekkingu og reynslu til að skilja áhættuna sem fylgir viðkomandi viðskiptum. Forsendur matsins voru ófullnægjandi frá og með ágúst 2023 til og með september 2024 og upplýsingar sem bankinn aflaði voru ekki nægilega vel til þess fallnar að varpa ljósi á raunverulega þekkingu og skilning viðskiptavina á eðli og áhættu viðkomandi fjármálagerninga.

Loks komst fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Arion banki hf. hefði ekki tryggt með fullnægjandi hætti að starfsmenn sem veittu viðskiptavinum fjárfestingarþjónustu byggju yfir nauðsynlegri þekkingu og hæfni til að uppfylla skyldur samkvæmt lögum. Starfsmenn brugðust ekki við ítrekuðum ummælum sem gáfu skýrt til kynna þann tilgang viðskiptanna að hækka verð hlutabréfa eða halda því uppi til að koma í veg fyrir veðkall. Skortur á viðbrögðum var ekki bundinn við einn starfsmann sem benti til kerfislægs vanda.

Með undirritun sáttarinnar hefur Arion banki hf. gengist við ofangreindum brotum og fallist á að greiða 280 milljónir króna í sekt.

Við ákvörðun sektarfjárhæðar var meðal annars litið til alvarleika og umfangs brotanna, stöðu bankans á íslenskum fjármálamarkaði og þess að brotin vörðuðu bæði heilleika verðbréfamarkaðar og vernd fjárfesta. Til lækkunar á sektarfjárhæð var litið til þess að meðferð málsins hjá fjármálaeftirlitinu dróst af ástæðum sem verða ekki raktar til málsaðila og samstarfsvilja bankans sem fólst m.a. í því að hann framkvæmdi úrbætur að eigin frumkvæði.

Sáttin er gerð á grundvelli 127. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga,

13. gr. laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum og reglna nr. 1234/2024 um heimild fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands til að ljúka máli með sátt.