Fara beint í Meginmál

Sátt fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Kviku banka hf. 9. febrúar 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur haft til meðferðar mál sem varðar brot Kviku banka hf. gegn 1. mgr. 26. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 (MiFIR) sem hefur öðlast lagagildi á Íslandi, sbr. 1. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að tilkynna fjármálaeftirlitinu ekki um öll viðskipti með fjármálagerninga á tímabilinu 14. desember 2022 til 7. febrúar 2024.

Með bréfi dags. 7. febrúar 2025 lýsti Kvika banki hf. yfir vilja til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar hinn 30. október 2025 var málið talið að fullu upplýst og forsendur til að ljúka því með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 20.000.000 kr. til ríkissjóðs.

Í sáttinni, sem er birt í heild sinni, er málsatvikum og niðurstöðum fjármálaeftirlitsins lýst í samræmi við 1. mgr. 133. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og 9. gr. a laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Með undirritun sáttarinnar hefur Kvika banki hf. gengist við því að hafa gerst brotlegt við 1. mgr. 26. gr. MiFIR. Kvika banki hf. hefur þegar lokið úrbótum.