Fara beint í Meginmál

Sátt Seðlabanka Íslands og Tryggingar og ráðgjafar ehf. 30. júlí 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot Trygginga og ráðgjafar ehf. („félagið“) á tilteknum ákvæðum laga nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga og laga nr. 30/2004 um vátryggingasamninga.

Niðurstaða fjármálaeftirlitsins var að félagið hefði birt rangar og misvísandi upplýsingar á vefsíðu sinni, í upplýsingaskjölum til viðskiptavina og á umboðum viðskiptavina. Þar kom fram að ekkert eignasamband eða eignatengsl væru á milli félagsins og vátryggingafélaga og að félagið væri því algerlega óháð. Þessar upplýsingar voru þó ekki í samræmi við stjórnunar- og eignatengsl á milli félagsins og NOVIS, slóvakísks vátryggingafélags sem hafði starfsleyfi til ársins 2023. Jafnframt upplýsti félagið fjármálaeftirlitið ekki um tengsl sín við NOVIS og framkvæmdi ekki greiningu á hagsmunaárekstrum þegar stofnaðist til framangreindra tengsla við NOVIS, eins og því bar skylda til samkvæmt lögum.

Brot félagsins varða ákvæði sem er ætlað að tryggja neytendum öfluga og víðtæka vernd. Markmið reglnanna er að neytendur fái réttar, sanngjarnar, skýrar og ekki villandi upplýsingar og geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vátryggingu eða vátryggingatengdri fjárfestingarafurð sem hentar þörfum þeirra. Auknar kröfur eru gerðar þegar um er að ræða vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir, líkt og þær sem félagið dreifði frá NOVIS, vegna eðli og eiginleika slíkra afurða, meðal annars flækjustigs og áhættu. Þar undir falla meðal annars kröfur um ráðstafanir vegna hagsmunaárekstra sem kunna að skapast við dreifingu þeirra.

Félagið lýsti yfir vilja sínum til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Málið var lagt fyrir fjármálaeftirlitsnefnd til ákvörðunar sem taldi það að fullu upplýst og forsendur til að ljúka því með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 35.000.000 kr. Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við tiltekin ákvæði laga nr. 62/2019 og nr. 30/2004. Félagið hefur þegar lokið úrbótum. 

Í sáttinni, sem birt er í heild sinni, er málsatvikum og niðurstöðum fjármálaeftirlitsins lýst í samræmi við 9. gr. a laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Nöfn einstaklinga í ákvörðuninni hafa verið fjarlægð í samræmi við stefnu Seðlabanka Íslands um opinbera birtingu á niðurstöðum stjórnsýslumála