Seðlabanki Íslands hefur nýverið undirritað samstarfssamning við Seðlabanki Frakklands um að efla fjármálalæsi og auka aðgengi að fræðsluefni um fjármál. Samstarfið felur meðal annars í sér að laga að íslenskum aðstæðum efni úr frönsku þjóðaráætluninni um fjármálalæsi (EDUCFI), sem Seðlabanki Frakklands leiðir. Samningurinn er liður í viðleitni beggja bankanna til að auka þekkingu og skilning almennings á fjármálum og efnahagsmálum. Seðlabanki Frakklands hefur verið leiðandi í útgáfu á efni til fjármálafræðslu, undir merkjum fjármálalæsisátaksins EDUCFI sem hófst árið 2016 með það að markmiði að auka aðgengi að fræðsluefni um fjármál sem væri óháð, áreiðanlegt og án endurgjalds. Samstarfið felur í sér að seðlabanki Frakklands lætur Seðlabanka Íslands í té efni tengt fjármálalæsi sem lagað verður að íslenskum aðstæðum og þörfum ólíkra markhópa.
Á vef Seðlabanka Íslands má finna fróðleik fyrir námsmenn og efni sem kennarar geta nýtt í kennslu í Þekkingarbankanum og á síðu fyrir Neytendur. Seðlabankinn tekur árlega á móti fjölda nemenda á öllum skólastigum og fer jafnframt í heimsóknir í skóla með fræðsluefni.
Samstarfssamningurinn auðveldar Seðlabanka Íslands að miðla óháðu og aðgengilegu efni tengdu fjármálum til almennings. Markmiðið er m.a. að styðja við kennslu í fjármálalæsi og að efla þekkingu og færni almennings til að taka upplýstar ákvarðanir í eigin fjármálum. Bætt fjármálalæsi eykur ekki bara velsæld heldur getur stutt við miðlun peningastefnunnar, aukið verðbólguvitund almennings og skilning á stefnu Seðlabankans, meðal annars til að stuðla að fjármálastöðugleika
Samstarfið við Seðlabanka Frakklands skapar vettvang fyrir regluleg skoðanaskipti um aðferðir við fjármálafræðslu, þróun fræðsluefnis og leiðir til að efla fjármála- og efnahagslæsi almennings.