Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hefja á ný reglubundin gjaldeyriskaup á millibankamarkaði. Nánar tiltekið hyggst bankinn kaupa 6 milljónir evra í viku hverri. Kaupin munu fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum skömmu eftir opnun markaðarins, þrjár milljónir evra í hvort skipti, en færast til næsta viðskiptadags ef dagurinn er frídagur. Fyrstu kaup verða þriðjudaginn 12. maí nk. og að óbreyttu er fyrirhugað að þeim ljúki fimmtudaginn 15. október n.k. Miðað við áform bankans munu kaupin nema samtals 138 milljónum evra, eða um 20 ma.kr. Bankinn endurmetur gjaldeyriskaupin ef aðstæður gefa tilefni til.
Meginmarkmiðið með gjaldeyriskaupunum er að mæta tilfallandi gjaldeyrisþörf ríkissjóðs og viðhalda með því stærð gjaldeyrisforðans yfir neðri mörkum þess sem Seðlabankinn telur æskilegt. Gjaldeyrisforðinn gegnir veigamiklu hlutverki í að stuðla að stöðugleika og viðnámsþrótti þjóðarbúsins.
Seðlabankinn telur að kaupin muni ekki hafa teljandi áhrif á gengi krónunnar við núverandi aðstæður. Bankinn mun eftir sem áður beita viðskiptum á gjaldeyrismarkaði til þess að draga úr skammtímasveiflum í gengi krónunnar eins og hann telur tilefni til.
Frétt nr. 5/2026
8. maí 2026