Seðlabanki Íslands vekur athygli á þróun í gervigreind sem dregið getur úr netöryggi. Þessi þróun breytir eðli netógna og kallar á aukna árvekni hjá fjármálafyrirtækjum og öðrum lykilaðilum í fjármálakerfinu.
Seðlabankinn hvetur eftirlitsskylda aðila (aðilar sem fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með) sem og önnur fyrirtæki til að fylgjast grannt með þessari þróun og meta áhrif hennar á eigin starfsemi og öryggi.
Nánari umfjöllun um þetta er að finna í dreifibréfi Seðlabanka Íslands sem sent hefur verið eftirlitsskyldum aðilum.