Seðlabankastjóri sat fund Þjóðhagsráðs annan þessa mánaðar þar sem m.a. var fjallað um stöðu í efnahagsmála, verðbólgu, launatölfræði og mat bankans á launaskriði. Markmið Þjóðhagsráðs er að styrkja samhæfingu hagstjórnar og ákvarðana á vinnumarkaði með hliðsjón af efnahagslegum og félagslegum stöðugleika og áhrifum á loftslagsmál. Þá er fjallað um stöðu efnahags- og félagsmála, samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni.
Formenn stjórnmálaflokka sem sitja í ríkisstjórn eiga sæti í Þjóðhagsráði ásamt forystufólki Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands íslands, Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands.
Glærur Seðlabankans um stöðu efnahagsmála, verðbólgu og launatölfræði má nálgast hér:
Launatölfræði. Þróun launa og umfjöllun um ólíka mælikvarða á laun. (Kynning Elísar Péturssonar)
Staða og horfur í efnahagsmálum. (Kynning Karenar Á. Vignisdóttur)
Hér má finna fundargerðir Þjóðhagsráðs: Stjórnarráðið | Þjóðhagsráð