Fara beint í Meginmál

Sjálfsmat á nákvæmni tímastimpla í TRS II skýrsluskilum 16. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur undanfarin misseri lagt sjálfsmöt fyrir aðila sem ber að skila daglegum viðskiptaskýrslum (TRS II skýrslur) á grundvelli 26. gr. MiFIR [1].

Ofangreind sjálfsmöt voru lögð fyrir fjóra skilaaðila TRS II skýrslna á grundvelli laga nr. 87/1998, þar sem markmiðið var að kanna gæði þeirra gagna sem viðkomandi aðilar höfðu tilkynnt til fjármálaeftirlitsins, en ítarlegar kröfur um útfyllingu og umgjörð umræddra skýrslna eru settar fram í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 2017/590 [2] (framselda reglugerðin). Nánar tiltekið afmörkuðust umrædd sjálfsmöt við að kanna útfyllingu á svæði nr. 28 í töflu 2 í viðauka I við framseldu reglugerðina, sem inniheldur upplýsingar um viðskiptadag og -tíma (tímastimplar).

Gerð er krafa um að nákvæmnistig tímastimpla fylgi kröfum framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2017/574 [3], en þar má finna nákvæmnistigið fyrir aðila að eða þátttakendur í viðskiptavettvangi í töflu 2 í viðauka.

Þegar um er að ræða viðskipti sem fara fram í Kauphöll Íslands er farið fram á nákvæmnistig upp á eina millisekúndu. M.ö.o. þurfa skilaaðilar TRS II skýrslna að tryggja að frávik tímastimpla sé ekki umfram framangreint viðmið til þess að tryggja fulla hlítni við framangreindar kröfur, en í sjálfsmötunum fólst að yfirfara tímastimpla í úrtaki sem fjármálaeftirlitið hafði skilgreint.

Í heildina náðu sjálfsmötin yfir u.þ.b. 1.000 viðskipti sem tilkynnt höfðu verið til fjármálaeftirlitsins. Í rúmlega 70% tilfella var nákvæmni tímastimpla í samræmi við viðeigandi kröfur. Í rúmlega 21% tilfella uppfylltu tímastimplar ekki sett viðmið en frávikin voru frá því að vera nokkrar sekúndur upp i nokkra klukkutíma. Í þeim 9% tilvika sem eftir standa kom í ljós að ekki var um tilkynningarskyld viðskipti að ræða, en mikilvægt er að skilaaðilar tryggi að fyrirkomulag sé til staðar sem geri þeim kleift að sía frá færslur sem falla ekki undir tilkynningaskylduna, sbr. 5. mgr. 2. gr. framseldu reglugerðarinnar.

Fjármálaeftirlitið mun áfram leggja ríka áherslu á gæði TRS II skýrslna, enda um að ræða mikilvæg eftirlitsgögn sem gera eftirlitinu kleift að framkvæma athuganir á háttsemi aðila á verðbréfamarkaði og greiningar á viðskiptum á markaði.

[1] Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012

[2] Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 600/2014 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um skýrslugjöf um viðskipti til lögbærra yfirvalda

[3] Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir nákvæmnistig viðskiptaklukkna