Fara beint í Meginmál

Skýring um framkvæmd laga um markaði fyrir sýndareignir 10. júlí 2026

Í frétt Seðlabanka Íslands frá 1. júlí sl. „Óheimilt er að veita þjónustu með sýndareignir án starfsleyfis frá og með 1. júlí 2026“, var fjallað um gildistöku laga nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir. Frá og með þeim degi er aðeins aðilum sem hafa hlotið starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (Crypto-Asset Service Provider – CASP) heimilt að veita þjónustu með sýndareignir.

Í fréttinni kemur fram að þjónustuveitendur sem ekki hafa fengið starfsleyfi skulu hætta þeirri starfsemi sem fellur undir MiCA og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að ljúka henni með skipulegum hætti. Í því felst að þeir hætti þjónustu með sýndareignir, að öðru leyti en því sem nauðsynlegt er til að ljúka starfseminni með skipulegum hætti, stöðvi  alla markaðssetningu og taki ekki við nýjum viðskiptavinum.

Seðlabankinn vill árétta að kröfurnar fela hvorki í sér að ráðstöfun eigna eða önnur skref vegna starfsloka hafi þurft að vera lokið fyrir 1. júlí 2026 né fyrirmæli um hvernig staðið skuli að afhendingu, umbreytingu eða annarri ráðstöfun sýndareigna í vörslu viðkomandi þjónustuveitenda.

Telji viðskiptavinur að ekki hafi verið staðið að afhendingu eða flutningi sýndareigna í samræmi við lög getur hann leitað réttar síns hjá kærunefnd vöru- og þjónustukaupa eða dómstólum, eftir atvikum. Neytendastofa hefur eftirlit með framkvæmd laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Hægt er að koma á framfæri ábendingum til Neytendastofu á vef stofnunarinnar.