Fara beint í Meginmál

Skýrsla pen­inga­stefnu­nefnd­ar Seðlabanka Íslands til Alþing­is 9. júlí 2026

Meðlimir peningastefnunefndar
Meðlimir peningastefnunefndar

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2026 hefur verið birt. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni. Skýrslan fjallar um ákvarðanir peningastefnunefndar um beitingu stjórntækja í peningamálum og þróun verðbólgu á tímabilinu janúar til júní 2026.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 20. maí 2026.