Seðlabankar og fjármálaeftirlit Norður- og Eystrasaltslandanna hafa sameiginlega gefið út skýrslu um eiginfjárkröfur viðskiptabanka. Í henni er fjallað um eiginfjárkröfur bankanna og hvernig löndin beita hinu sameiginlega evrópska regluverki sem lýtur að eiginfjárkröfum.
Skýrslan sýnir að samsetning og umfang eiginfjárkrafna er ólíkt milli ríkja og undirstrikar mikilvægi þess að taka tillit til áhættu, starfsemi banka yfir landamæri og fleiri þátta þegar eiginfjárkröfur eru bornar saman.
Í skýrslunni kemur m.a. fram að krafa um almennt eigið fé þáttar 1 er svipuð á Íslandi og í Noregi en hærri en í hinum löndunum. Það má að hluta skýra með því hversu stór hluti viðskiptabanka hér á landi telst kerfislega mikilvægur og þarf af þeim sökum að uppfylla sérstakan eiginfjárauka. Þótt krafa um almennt eigið fé þáttar 1 sé mismunandi eru samanlögð eiginfjárhlutföll viðskiptabanka í ríkjunum átta á frekar þröngu bili, frá um 18 til 20%.
Í skýrslunni má einnig sjá hvernig áhættuskuldbindingar íslenskra viðskiptabanka dreifast milli ríkjanna átta. Íslenskir bankar starfa meira á heimamarkaði en viðskiptabankar hinna ríkjanna, um 94% áhættuskuldbindinga eru á Íslandi en á bilinu 46-84% í hinum ríkjunum eins og sjá má í töflu 1 í skýrslunni.
Skýrslan dregur jafnframt fram muninn á almennum og sértækum kerfisáhættuauka. Sem dæmi um beitingu á almennum kerfisáhættuauka má nefna Ísland og Noreg, þar sem gildi hans er 2% og 4,5% af öllum innlendum áhættuskuldbindingum. Í Danmörku er hins vegar beitt sértækum kerfisáhættuauka sem nemur 7% af áhættuskuldbindingum til fasteignafélaga. Þar sem aukinn gildir aðeins um lítinn hluta áhættuskuldbindinga eykur hann heildarkröfu um eiginfjárgrunn danskra banka aðeins um 0,7 prósentur.
Í skýrslunni kemur fram að meirihluti ríkjanna hefur breytt aðferðafræði sinni við mat á sveiflujöfnunarauka. Nú skilgreina öll ríkin, að Danmörku og Noregi undanskildum, jákvætt hlutlaust gildi aukans. Þessari breyttu stefnu er ætlað að auka viðnámsþrótt fjármálafyrirtækja og auka svigrúm til að bregðast við óvæntum áföllum með lækkun eða niðurfellingu aukans.