Fara beint í Meginmál

Skýrsla um þróun svika í greiðsluþjónustu 11. nóvember 2026

Ársskýrsla Seðlabanka Íslands um þróun svika í greiðsluþjónustu hefur verið birt. Skráðum svikatilvikum við millifærslur fjölgaði úr 322 árið 2023 í 1.358 árið 2025 og hafa þau því meira en fjórfaldast á tveimur árum. Skráð svikatilvik við notkun greiðslukorta voru um 29 þúsund árið 2025, álíka mörg og árið 2023, eftir fækkun árið 2024.

Fjárhæð skráðra svika við notkun greiðslukorta nam um 510 milljónum króna árið 2025 og við millifærslur um 845 milljónum króna. Skráð fjárhagslegt tjón vegna svika við millifærslur nam um 683 milljónum króna, samanborið við um 172 milljónir króna árið 2024.

Svikaleiðir eru ólíkar eftir greiðsluleiðum. Við millifærslur er algengast að greiðandi sé blekktur til að framkvæma greiðsluna sjálfur. Við greiðslukortasvik er algengara að svikari komist yfir kortaupplýsingar og noti þær til greiðslna án aðkomu korthafans. Mikilvægt er að tilkynna svik sem fyrst til viðkomandi greiðsluþjónustuveitanda og lögreglu, því skjót viðbrögð geta aukið líkur á endurheimt fjármuna.

Sjá nánar: Ársskýrsla um þróun svika í greiðsluþjónustu. Birt 11. nóvember 2026.

Fjárhæð svika við millifærslur
Fjárhæð svika við millifærslur
Fjárhæð svika við notkun á greiðslukortum
Fjárhæð svika við notkun á greiðslukortum