Fara beint í Meginmál

Staða markaðsverðbréfa í apríl 2024

Staða markaðsskuldabréfa nam 3.400,5 ma.kr. í lok apríl 2024 og lækkaði um 91,7 ma. kr. í mánuðinum. Staða ríkisbréfa lækkaði um 84,0 ma.kr. og ríkisvíxlar hækkuðu um 75,4 ma.kr. Bankabréf og -víxlar lækkuðu samtals um 1,3 ma.kr. Hlutdeildarskírteini sjóða námu 1.054,0 ma.kr. og markaðsvirði skráðra hlutabréfa á aðallista Kauphallar Íslands nam 2.729,7 ma.kr í lok apríl 2024.

Sjá nánari sundurliðun á stöðu markaðsverðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is